Kristín Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin í starf hjúkrunardeildarstjóra á Hjartagátt Landspítala frá 1. júlí 2011 til næstu 5 ára. Kristín var sett í stöðu deildarstjóra Hjartagáttar þann 1. apríl 2010 þegar deildin var opnuð.
Kristín Sigurðardóttir lauk B.S. prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og stundar diplómanám í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu.
Kristín hefur víðtæka starfsreynslu sem hjúkrunarfræðingur. Hún starfaði sem deildarstjóri á hjartadeild 14G á árunum 2006 til 2010, sem hjúkrunarfræðingur á hjartadeild 14E frá 2002-2006, hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild 12B 2001-2002 og var hjúkrunarfræðingur á hjartadeild 14E 1998-2001.