Samtök um sárameðferð, SumS, halda sína árlegu ráðstefnu föstudaginn 25. september á Grand hótel Reykjavík. Efni ráðstefnunnar er fjölbreytt að vanda. Fjallað verður um hreinsun sára, stöðu þekkingar, niðurstöður nýlegra íslenskra rannsókna á sárameðferð verða kynntar og vinnusmiðjur verða í boði í hreinsun sára og þrýstingsumbúðum.
Erlendir gestir ráðstefnunnar eru að þessu sinni prófessor Finn Gottrup og Bo Jörgensen, læknar á BBH sjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn.
Nánari upplýsingar un dagskrá og skráningu er að finna á heimasíðu sárasamtakanna www.sums-is.org