Hulda í verkefnisstjórn hjá heilbrigðisráðuneyti en Björn tekur við sem forstjóri
|
Hulda Gunnlaugsdóttir, sem fengið hefur ársleyfi sem forstjóri Landspítala, hefur fyrir orð Ögmundar Jónassonar, heilbrigðisráðherra, tekið að sér verkefnisstjórn í heilbrigðisráðuneytinu til mánaðamóta og er markmiðið að setja fram tímasetta verkáætlun sem byggist á starfi sem fram hefur farið undanfarna mánuði um hagræðingu í heilbrigðiskerfinu. Er þetta gert til að ná fram markvissari rekstri heilbrigðisstofnana á næstu árum með aukinni samvinnu og skýrari verkaskiptingu innan kerfisins. Reynt verður að draga eins lítið úr þjónustu við sjúklinga og kostur er þrátt fyrir þann mikla niðurskurð í heilbrigðiskerfinu sem nú blasir við. Sömuleiðis er ætlunin að reyna að koma í veg fyrir uppsagnir starfsmanna sem mest menn geta. Við skipulagsbreytingar og breytta verkaskiptingu í starfsemi heilbrigðisstofnana er lögð rík áhersla á víðtækt samráð við fulltrúa starfsmanna og samtök þeirra.
Á vef heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra telji afar mikilvægt að fá Huldu Gunnlaugsdóttur sem liðsauka inn í þetta starf sem unnið hefur verið í náinni samvinnu stjórnenda heilbrigðisstofnana í landinu og almannasamtaka undanfarna mánuði. Hún hafi víðtæka reynslu af skipulagsbreytingum bæði hér á landi og frá Noregi. "Okkur hefur miðað vel í þessari vinnu en verkefnið sem við stöndum frammi fyrir er risavaxið og við verðum að nýta allt okkar besta fólk, á öllum sviðum, til að komast í gegnum samdráttinn, án þess að öryggi sjúklinga sé stefnt í voða. Til að það megi takast verðum við öll að vinna saman," segir Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra á vef ráðuneytisins.
|
|
Björn Zoëga framkvæmdastjóri Landspítala hefur verið skipaður forstjóri Landspítala í eitt ár frá 1. október en hefur nú verið settur til að gegna starfinu þangað til frá og með 10. september 2009.
|