Hermann Hreiðarsson knattspyrnumaður hefur fært Barnaspítala Hringsins 800 þúsund krónur sem söfnuðust á styrktargolfmótinu Herminator invitational sem hann stóð fyrir í Vestmannaeyjum í sumar. Alls söfnuðust um 2,8 milljónir króna og var fénu deilt á 5 staði.
Jón Hilmar Friðriksson framkvæmdastjóri kvenna- og barnasviðs tók við peningunum fyrir hönd Barnaspítala Hringsins við athöfn á Hótel Nordica fimmtudaginn 3. september 2009.