Með opnun nýja útvefsins lýkur hvergi nærri því breytingarferli í vefmálum Landspítala sem hófst árið 2007. Þetta er umfangsmikið ferli og mikið ógert bæði á heimavef og útvef í flutningi og endurskoðun eldra efnis og uppbyggingu vefsíðna fyrir margar starfseiningar. Að því verður unnið ötullega áfram og það verkefni hefur helst að markmiði að upplýsingamiðlun innan spítalans og út fyrir hann sé sem greiðust og innihaldsríkust þannig að starfsfólk Landspítala og almenningur geti nýtt rafrænar leiðir í samskiptum innan spítalans og við hann sem allra mest.
Nýr upplýsingavefur Landspítala er settur upp í vefumsjónarkerfinu Lísu frá hugbúnaðarfyrirtækinu Eskli.