Skemmtinefnd Félags ungra lækna (skemmtiful@gmail.com) stendur fyrir átaksverkefninu “gleði og gjafmildi í desember”. Það felur í sér hvatningu félagsins til allra starfsmanna Landspítala um að láta gott af sér leiða og velja málefni til að styrkja með einhverjum hætti fyrir jólahátíðina. Deildir eða starfshópar geti til dæmis tekið sig saman um það og framlög verið í formi fjármagns, matar, klæða eða hverju öðru sem nýtist þeim sem minna mega sín.
Í samstarfi við Blóðbankann vekur Félag ungra lækna lika sérstaka athygli á mikilvægi blóðgjafar og hvetur fólk til þess að gefa blóð. Unglæknarnir stefna að metþátttöku í blóðgjöf og vonast eftir góðum undirtektum meðal annarra starfsmanna spítalans.
Hámarki nær átaksverkefni unglæknanna með rauðri viku 15. til 19. desember en þá hvetja þeir starfsfólk Landspítala til þess að klæðast rauðu eða vera með rauða fylgihluti. Glaðningur af ýmsum toga verður í boði Félags ungra lækna í rauðu vikunni víðs vegar um “gleðispítalann”.