Aðal styrktaraðilar og stofnendur sjóðsins eru konur í Thorvaldsensfélaginu. Fyrir tilstilli þeirra framlags hefur reynst mögulegt að styrkja viðveru lækna og hjúkrunarfræðinga í sumarbúðum barna og unglinga með sykursýki sem haldnar hafa verið árlega sl. 5 ár. Enn fremur hefur sjóðurinn styrkt rannsóknir á gæðum meðferðar við göngudeild barnaspítalans og nú nýlega öflugt framtak sem miðar að því að gera árangur meðferðar í sykurstjórnun enn betri.
Thorvaldsenskonur hafa lýst yfir að allur ágóði af sölu jólakorta þeirra í ár verði tileinkaður börnum og unglingum með sykursýki.