Mænuskaðastofnun Íslands verður með landssöfnun í opinni dagskrá Stöðvar 2 föstudaginn 19.september 2008 og í tengslum við hana eru seldrar þrjár tegundir gestaþrauta. Þrautirnar eru í pokum sem merktir eru: Mænan er ráðgáta - hjálpumst að við að leysa hana. Afrakstur sölu gestaþrautanna og það fé sem safnast í landssöfnunni rennur óskipt til rannsókna og tilraunalækninga á mænuskaða.
Þrautirnar henta bæði börnum og fullorðnum og kostar stykkið kr. 1.500, sjá mynd. Þær eru til sölu hjá eftirtöldum á LSH:
Erlín Óskarsdóttir skurðstofu Hringbraut
Sími: 543 7205 erlin@landspitali.is
Áslaug Svavarsdóttir skurðstofu kvennasviðs
Sími: 543 3807 auslaugsv@landspitali.is
Valgerður Jónsdóttir skurðstofu Fossvogi.
Sími: 543 7877 valgerdj@landspitali.is
Mænuskaðastofnun Íslands www.isci.is var stofnuð í desember sl. að tilstuðlan Auðar Guðjónsdóttur hjúkrunarfræðings á skurðstofu Hringbrautar. Stofnaðilar auk hennar eru Hrafnhildur Thoroddsen, heilbrigðisráðuneytið, Stoðir, Exista og Seltjarnarnesbær. Markmið stofnunarinnar er að gera Ísland að leiðandi afli á alþjóðlegu mænuskaðasviði.
Heilbrigðisráðuneytið tryggir rekstrargrundvöll Mænuskaðastofnunar.
Í stjórn hennar sitja Hanna Katrín Friðriksson aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, Júlíus Þorfinnsson forstöðumaður samskiptasviðs Stoða, Sigurður Valtýsson forstjóri Exista, Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri Seltjarnarness og Auður Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur sem er formaður stjórnar.