Haldinn verður fundur um notkun stofnfruma í vefjaverkfræði (tissue engineering) og frumumeðferð (cell therapy) á Íslandi í matsalnum á 3. hæð í Blóðbankanum, Snorrabraut 60, mánudagurinn 11. júní 2007. Fundurinn hefst kl. 10:30. Að fundinum standa: Blóðbankinn á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, verkfræðideild Háskóla Íslands, læknadeild Háskóla Íslands og Össur hf.
Hópur íslenskra vísindamanna hefur unnið að undirbúningi þess að setja á stofn samtök/ fyrirtæki sem mun sérhæfa sig í að þróa lausnir fyrir vefjaverkfræði og ný úrræði í frumumeðferð. Um er að ræða samtvinnun verkfræðilegrar, lífvísindalegrar og læknisfræðilegrar hugsunar sem mun í framtíðinni geta af sér nýjungar í læknisfræðilegri meðferð.
Staða þekkingar og áform íslenska hópsins verða kynnt fyrir fagfólki og stjórnmálamönnum á þessum fundi.
Dagskrá
10:30 | Dr. Sveinn Guðmundsson yfirlæknir Blóðbankans setur fundinn. | |
10:35 | Prófessor Bernhard Ö. Pálsson, University of California, San Diego -Stofnfrumur í vefjaverkfræði og frumumeðferð. |
|
11:00 | Dr. Ólafur E. Sigurjónsson, forstöðumaður rannsókna og nýsköpunar, Blóðbankanum. -Mesenchymal stromal stofnfrumur. Nýtt meðferðarúrræði. | |
11:20 | Dr. Hilmar B. Janusson framkvæmdastjóri rannsóknar- og þróunarsviðs, Össur hf -Vefjaverkfræði og frumumeðferð sem viðskiptatækifæri á markaði lækningatækja. |
|
11:40 | Prófessor Bernhard Ö. Pálsson, University of California, San Diego -Vefjaverkfræði og frumumeðferð á Íslandi: Framtíðaráætlun. |
|
12:00 | Umræður |
Samantekt:
Vefjaverkfræði (tissue engineering) og frumumeðferð (cellular therapy/regenerative medicine) munu gegna mikilvægu hlutverki í læknisfræðilegri meðferð í framtíðinni. Út frá viðskiptalegu sjónarmiði er þetta einnig mjög áhugavert svið og það er talið að í Bandaríkjunum muni
markaðurinn velta í kringum 80 milljörðum USD árið 2015. Mikilvægi þessara nýjunga fyrir meðferð sjúklinga er fyrirsjáanlegt.
Nú þegar eru stofnfrumur notaðar til meðferðar sjúklinga með ákveðnar tegundir blóðsjúkdóma og krabbameina hér á landi í samstarfi Blóðbankans og blóðlækningadeildar LSH. Á næstu árum má búast við því að stofnfrumur verði notaðar í meðferð á ýmsum stoðkerfisgöllum og stoðkerfissjúkdómum, hjartadrepi og ýmsum sjúkdómum tengdum ónæmiskerfinu.
Þetta er samstarfsverkefni Blóðbankans á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, verkfræðideildar og læknadeildar Háskóla Íslands, University of California í San Diego og Össurar hf.
Fyrirlesarnir:
Dr. Bernhard Ö. Pálsson
Bernhard lauk B.S. gráðu í efnaverkfræði frá University of Kansas árið 1979 og doktorsgráðu (PhD) í efnaverkfræði frá University of Wisconsin árið 1984.
Bernhard er Galetti-prófessor við University of California, San Diego auk þess að vera prófessor við Keio University í Tokyo. Bernharður var einn af stofnendum líftæknifyrirtækisins Urður Verðandi Skuld, auk tæknifyrirtækjanna Aastrom Biosciences og Oncosis/ Cyntalect. Bernahard er einn af virtustu fræðimönnum á sínu sviði og var nýlega valinn einn af áhrifamestu vísindamönnum í líftækni í heiminum síðustu 10 árin af tímaritinu Nature Biotechnology.
Dr. Ólafur E. Sigurjónsson
Ólafur lauk B.S. gráðu í sameindalíffræði frá líffræðiskor Háskóla íslands árið 1998 og M.S. gráðu í heilbrigðisvísindum frá læknadeild Háskóla Íslands árið 2001. Árið 2006 lauk Ólafur doktorsgráðu (PhD) í stofnfrumulíffræði og ónæmisfræði frá Háskólanum í Osló. Ólafur starfaði við stofnfrumurannsóknir í Blóðbankanum 1998-2001 og hefur verið forstöðumaður rannsókna og nýsköpunar í Blóðbankanum frá ársbyrjun 2006.
Dr. Hilmar B. Janusson
Hilmar B. Janusson lauk B.S. prófi í efnafræði frá Háskóla Íslands árið 1986 og doktorsgráðu í efnafræði og verkfræði frá University of Leeds árið 1992. Hilmar starfaði á Iðntæknistofnun á árunum 1987-1988 og hefur starfað hjá Össuri síðan 1993 sem framkvæmdastjóri rannsóknar- og þróunarsviðs Össurar hf.