Ný vísindastefna Landspítala - háskólasjúkrahúss var samþykkt á fundi framkvæmdastjórnar LSH 24. apríl 2007. Samkvæmt henni er öflugt vísindastarf talin forsenda góðrar heilbrigðisþjónustu og menntunar heilbrigðisstétta og LSH setur sér að vinna ásamt öðrum vísinda- og heilbrigðisstofnunum að því að bæta heilbrigði þjóðarinnar með hagnýtingu vísindarannsókna og þekkingarmiðlun. Í ljósi þess stefnir Landspítali - háskólasjúkrahús að því að vera árið 2012 eitt af fimm bestu háskólasjúkrahúsum á Norðurlöndum hvað varðar árangur og afköst í vísindarannsóknum. Stefnt verður að því að LSH verði í fremstu röð alþjóðlega í heilbrigðisvísindum og eftirsóknarverður samstarfsaðili fyrir innlendar og erlendar stofnanir og fyrirtæki. Fjárframlag stjórnvalda til vísindarannsókna á LSH fylgi þeirri þróun sem er hjá norrænum háskólasjúkrahúsum og verði orðið 3% af veltu spítalans fyrir árið 2011. Helmingur þess fari til Vísindasjóðs LSH. Jafnframt er gert ráð fyrir því að vísindamenn spítalans sæki samsvarandi fjármagn til ytri samkeppnissjóða. Gert er ráð fyrir því að nýting fjár til vísindarannsókna á LSH fari eftir árangursmati og samkeppni með jafningjamati.
Vísindastefnan í heild á vef vísindaráðs LSH - smellið hér