Almennar upplýsingar um sjúkraskrá Landspítala
Sjúkraskrá Landspítala er safn upplýsinga um sjúkling sem unnar eru í tengslum við meðferð eða fengnar annars staðar frá vegna meðferðar hans á spítalanum. Þegar leitað er eftir meðferð á Landspítala eru færðar í sjúkraskrá upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna meðferðarinnar.
Sjúkraskrárupplýsingar eru lýsing eða túlkun í rituðu máli, myndir, þ.m.t. röntgenmyndir, línurit og mynd- og hljóðupptökur sem innihalda upplýsingar er varða heilsufar sjúklings og meðferð hans á Landspítala og aðrar nauðsynlegar persónuupplýsingar.
Sjúkraskrá Landspítala er rafræn og uppfyllir öryggisstaðal ISO 27001.
Landspítali hefur sett sér stefnu um sjúkraskrá. Í henni kemur fram sýn og heit spítalans um gæði og öryggi skráningar og sjúkraskrárkerfa.
Lög um sjúkraskrár nr. 55/2009 marka þann ramma sem spítalinn starfar eftir og eru þau endurspegluð í stefnunni.
Beiðni um afrít úr: