Leit
Loka

Hjartadeild EG

Eina deild landsins sem sérhæfir sig í þjónustu við sjúklinga með einkenni frá hjarta. Sinnir fyrst og fremst sjúklingum frá Hjartagátt og bráðadeild í Fossvogi. Sjúklingar eru einnig kallaðir inn af biðlista eða koma frá öðrum sjúkrahúsum landsins

Deildarstjóri

Bylgja Kærnested

bylgjak@landspitali.is
Yfirlæknir

Davíð O. Arnar

davidar@landspitali.is

Banner mynd fyrir  Hjartadeild EG

Hafðu samband

OPIÐAllan sólarhringinn alla daga

Hjartadeild - mynd

Hér erum við

Aðalbygging Hringbraut, 4. hæð E og G álma

Hagnýtar upplýsingar

Setustofa á hjartadeild 14EG við Hringbraut

Meginviðfangsefni

  • Kransæðasjúkdómar – bráðir og langvinnir
  • Hjartabilun – bráð og langvinn
  • Hjartsláttartruflanir margvíslegar
  • Hjartalokusjúkdómar
  • Hjartavöðvasjúkdómar
  • Háþrýstingur
Hjartadeild 14EG er eina deild landsins sem sérhæfir sig í þjónustu við sjúklinga með einkenni frá hjarta. Deildin sinnir fyrst og fremst sjúklingum frá Hjartagátt og bráðadeild í Fossvogi. Sjúklingar eru einnig kallaðir inn af biðlista eða koma frá öðrum sjúkrahúsum landsins til sérhæfðrar meðferðar á deildinni.  Hjartadeildin er legudeild með 32 rúmum og eru starfsmenn um 100. Meðallegutími sjúklinga er 6 dagar en getur verið allt frá einum sólarhring upp í nokkrar vikur.  Á deildinni eru einbýli, tvíbýli og fjórbýli.  Starfsfólk deildarinnar leggur áherslu á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra og að veita greinargóðar upplýsingar um sjúkdómsástand, rannsóknir, meðferð, hjúkrun og batahorfur.
  • Deildin er opin allan sólarhringinn allan ársins hring
  • Sjúklingar leggjast inn hvenær sem er sólarhringsins og útskrifað er alla daga
  • Sjúklingum er sinnt allan sólarhringinn, allt eftir þörfum hvers og eins en mest er um að vera á morgnana. Þá er veitt aðstoð við persónulega umhirðu, genginn stofugangur og útskriftir undirbúnar
  • Vaktaskipti hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða eru kl. 08:00, 15:30 og 23:00
  • Stofugangur er kl. 09:00-11:00
  • Heimsóknartímar eru eftir samkomulagi en yfirleitt ekki fyrir hádegi eða eftir kl. 20:00
  • Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar gegna mikilvægu hlutverki í meðferð, fræðslu og ráðleggingum til sjúklinga
  • Félagsráðgjafar veita ráðgjöf varðandi réttindamál, búsetuúrræði og færni og heilsumat
  • Sálfræðingar eru kallaðir til eftir þörfum fyrir sjúklinga og aðstandendur
  • Næringarráðgjafar veita fræðslu og ráðgjöf um mataræði
  • Prestar og djáknar sinna sálgæslu sjúklinga, aðstandenda og starfsfólks

Tengd starfsemi

  • Hjartadeildin starfar náið með Hjartagátt, hjarta- og æðaþræðingastofu og hjartarannsókn við greiningu, meðferð og eftirfylgni einstaklinga með hjartasjúkdóma
  • Stór hluti sjúklinga fær eftirlit og meðferð á göngudeildum eftir útskrift af hjartadeild en það er liður í því að tryggja sjúklingum bestu mögulegu þjónustu
  • Heimahjúkrun og heimaþjónusta sinna fjölmörgum sjúklingum eftir útskrift, einkum þeim sem hafa langvinna hjartabilun

 

Allir sjúklingar fá mat á deildinni nema þeir séu tímabundið fastandi vegna rannsókna, aðgerða eða sjúkdómsástands.

  • Morgunverður um kl. 8:30
  • Hádegisverður um kl. 12:00
  • Miðdegiskaffi um 14:30
  • Kvöldmatur kl. 17:30
  • Kvöldkaffi um 19:30
  • Á ganginum er vatnskælivél.
  • Kæliskápur fyrir sjúklinga ásamt borði með blómavösum og merkimiðum.
  • Farsíma má nota en vinsamlega hafið símann stilltan á hljólausa stillingu og takið tillit til stofufélaga þegar talað er í síma.
  • Vinsamlega virðið einkalíf annarra sjúklinga og ræðið ekki það sem þið kunnið að verða áskynja um heilsufar þeirra og hagi.
  • Sjúklingar geta fengið aðgang að Netinu gegnum gestanet spítalans
  • Afþreyingartónlist er í útvarpinu á rás 3.
  • Sjónvörp eru á öllum sjúkrastofum.
  • Kvennadeild Rauða kross Íslands rekur verslanir í anddyrum Landspítala.
  • Sjúklingar eru beðnir um að láta vita ef þeir hyggjast fara í verslunina eða af deildinni í öðrum erindagjörðum.
  • Hraðbanki er í anddyri í Kringlu og sjálfsalar á nokkrum stöðum í húsinu.
  • Guðsþjónustur eru flesta sunnudaga kl.10:00 á Landspítala Hringbraut og eru auglýstar sérstaklega.

Landspítali er háskólasjúkrahús og þangað kemur ár hvert fjöldi nemenda í hinum ýmsu starfsgreinum til kennslu og þjálfunar.

Nemendur fylgjast með og taka þátt í daglegri meðferð sjúklinga. Þeir eru alltaf á ábyrgð undir handleiðslu leiðbeinenda sinna.

Þá er unnið umfangsmikið vísindastarf á sjúkrahúsinu.  Sjúklingar eru stundum beðnir um að taka þátt í slíkum verkefnum og eiga þeir þá rétt á ítarlegri upplýsingagjöf um tilgang og framkvæmd verkefnis. Hverjum og einum er heimilt að neita slíkri þátttöku eða hætta henni hvenær sem er án skýringa.

Allir sjúklingar eiga að fá armband með nafni og kennitölu.  Upplýsingar á armbandinu eru notaðar til staðfestingar þegar lyf eru gefin, við blóðgjafir og hvers kyns rannsóknir og aðgerðir.

Stundum þykir fólki nóg um hversu oft er til dæmi spurt um kennitölu, ofnæmi og lyfjanotkun en allt er þetta gert til að tryggja öryggi.

Best er ef sjúklingar eru vakandi fyrir þessum vinnureglum og minni á ef ekki er farið eftir þeim.

Hjálpaðu okkur að tryggja öryggi þitt.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?