Leit
Loka

Háls-, nef- og eyrna-, lýta-, bruna- og æðaskurðdeild A4

Þjónusta við sjúklinga eftir háls-, nef- og eyrnaaðgerðir, lýtaaðgerðir, æðaskurðagerðir, uppbyggingu á brjóstum og vegna brunameðferðar

Deildarstjóri

Ingibjörg Guðmundsdóttir

Yfirlæknir

Arnar Þór Guðjónsson (HNE) / Gunnar Auðólfsson (Lýta) / Lilja Þyri Björnsdóttir (Æða)

Banner mynd fyrir  Háls-, nef- og eyrna-, lýta-, bruna- og æðaskurðdeild A4

Hafðu samband

OPIÐAllan sólarhringinn alla daga

Heimsóknartímar eftir samkomulagi

Háls-, nef- og eyrnadeild, lýta- og æðaskurðdeild (HNE)  - mynd

Hér erum við

Fossvogur, aðalbygging, 4. hæð – A álma

Hagnýtar upplýsingar

Meginviðfangsefni lýtaskurðlækningar, háls-, nef- og eyrnaskurðlækningar og æðaskurðlækningarA4:

  • Aðhlynning sjúklinga sem fara í uppbyggingu á brjóstum og aðgerðir vegna ýmiss konar lýta, meðfæddra útlitsgalla og húðkrabbameina
  • Brunameðferð fyrir allt landið
  • Aðgerðir á hálsi, nefi og eyrum
  • Umönnun sjúklinga sem fara í slagæðaaðgerðir á hálsi, kvið og útlimum sem og sárameðferð og aflimanir.

Legudeild með 18 rúmum. 
Sjúklingar sem leggjast inn á deildina koma frá bráðadeild, dagdeild skurðlækninga eða gjörgæsludeild.

Starfsfólk deildarinnar leggur áherslu á góð samskipti við sjúklinga og fjölskyldur þeirra og að veita greinargóðar upplýsingar um sjúkdómsástand, rannsóknir, meðferð, hjúkrun og batahorfur.

  • Deildin er opin allan sólarhringinn allan ársins hring. Sjúklingar leggjast inn hvenær sem er sólarhringsins og útskrifað er alla daga. 
  • Sjúklingum er sinnt allan sólarhringinn allt eftir þörfum hvers og eins en mest er um að vera á morgnana. Þá er veitt aðstoð við persónulega umhirðu, genginn stofugangur og útskriftir undirbúnar. 
  • Vaktaskipti hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða eru kl. 08:00, 15:30 og 23:00. Stofugangur er frá 09:00-11:00.
  • Heimsóknartímar eru eftir samkomulagi en yfirleitt ekki fyrir hádegi eða eftir kl. 20:00.
  • Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar gegna mikilvægu hlutverki í meðferð, fræðslu og ráðleggingum til sjúklinga. 
  • Félagsráðgjafar veita ráðgjöf varðandi réttindamál, búsetuúrræði og færni og heilsumat.
  • Sálfræðingar eru kallaðir til eftir þörfum fyrir sjúklinga og aðstandendur. 
  • Næringarráðgjafar veita fræðslu og ráðgjöf um mataræði.
  • Prestar og djáknar sinna sálgæslu sjúklinga, aðstandenda og starfsfólks.  
  • Allir sjúklingar fá mat á deildinni nema þeir séu tímabundið fastandi vegna rannsókna, aðgerða eða sjúkdómsástands. Morgunverður er um kl. 08:30, hádegisverður um kl. 12:00, miðdegiskaffi um 14:30, kvöldmatur kl. 17:30 og kvöldkaffi um 19:30
  • Á ganginum er vatnskælivél. Í dagstofu er kæliskápur fyrir sjúklinga.
  • Blóm eru ekki leyfð vegna ofnæmis
  • Farsíma má nota en vinsamlega hafið símann stilltan á hljóðlausa hringingu og takið tillit til stofufélaga þegar talað er í síma
  • Vinsamlega virðið einkalíf annarra sjúklinga og ræðið ekki það sem þið kunnið að verða áskynja um heilsufar þeirra og hagi
  • Sjúklingar geta fengið aðgang að Netinu gegnum gestanet spítalans spítalans
  • Afþreyingartónlist er í útvarpinu á rás 3. Sjónvörp eru á öllum sjúkrastofum
  • Kvennadeild Rauða kross Íslands rekur verslanir í anddyrum Landspítala
  • Sjúklingar eru beðnir um að láta vita ef þeir hyggjast fara í verslunina eða af deildinni í öðrum erindagjörðum
  • Hraðbanki er í anddyri á 1. hæð, sjálfsalar á 2. hæð og við innganga á bráðamóttöku.
  • Guðsþjónustur eru flesta sunnudaga kl.10:00 á fjórðu hæð. Þær eru auglýstar sérstaklega
 

Sjúkrahúsdvöl á aldrei að vera lengri en nauðsyn krefur og sjúklingar eiga að jafnaði að fá upplýsingar um útskrift innan sólarhrings frá innlögn.

  • Upplýsingar um ástæður innlagnar, meðferð og niðurstöður rannsókna
  • Upplýsingar um áframhaldandi eftirlit ef slíkt er fyrirhugað og hvert á að leita eftir niðurstöðum sem liggja ekki fyrir við útskrift
  • Upplýsingar um hættumerki sem þarf að vera vakandi fyrir eftir heimkomu og hvert á að leita ef vandamál koma upp eftir útskrift
  • Yfirlit yfir þau lyf sem á að taka, skammtastærðir og tímalengd ef við á. Lyfseðlar eru sendir rafrænt í lyfjagátt og er hægt að leysa út í hvaða apóteki sem er.
  • Lyf og lyfjagjafir
  • Útskrift

Allir sjúklingar eiga að fá armband með nafni og kennitölu.  Upplýsingar á armbandinu eru notaðar til staðfestingar þegar lyf eru gefin, við blóðgjafir og hvers kyns rannsóknir og aðgerðir.

Stundum þykir fólki nóg um hversu oft er til dæmi spurt um kennitölu, ofnæmi og lyfjanotkun en allt er þetta gert til að tryggja öryggi.  Best er ef sjúklingar eru vakandi fyrir þessum vinnureglum og minni á ef ekki er farið eftir þeim.

Hjálpaðu okkur að tryggja öryggi þitt.

 

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?