Þátttaka nemenda heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands við skóflustungu að nýju sjúkrahóteli Landspítala vakti athygli viðstaddra. Fyrir sjálfa skóflustunguna undirritaði Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra samning við Ásgeir Loftsson, framkvæmdastjóra LNS SAGA, um að fyrirtækið byggi sjúkrahótelið. Sex nemendur deilda heilbrigðisvísindasviðs vottuðu samninginn með undirskrift sinni. Þetta voru eftirtaldir nemendur, fulltrúar framtíðarstarfsmanna í nýjum spítala við Hringbraut:
Ómar Rafn Stefánsson - lyfjafræði
Páll Óli Ólason - læknisfræði
Inga María Árnadóttir - hjúkrunarfræði
Thelma Rut Grímsdóttir - næringarfræði,
Anna Margrét Bjarnadóttir - tannlækningar
Örnólfur Thorlacius - sálfræði
Á myndinni eru framantaldir nemendur með Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og Ragnhildi Helgadóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, sem bæði vottuðu sjálfa skóflustunguna.