Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra tók fyrstu skóflustungu að nýju sjúkrahóteli á Landspítala Hringbraut kl. 11:00 miðvikudaginn 11. nóvember 2015. Með honum voru m.a. fyrrverandi heilbrigðisráðherrar auk starfsmanna Landspítala, annarra velunnara hans og áhugafólks um uppbyggingu þjóðarsjúkrahússins við Hringbraut.
Athöfnin hófst með því að heilbrigðisráðherra skrifaði undir samning við byggingarfyrirtækið LNS Saga ehf. um byggingu sjúkrahótelsins. Samningurinn er milli Nýs Landspítala ohf. og LNS Saga ehf. sem var lægstbjóðandi í verkið í útboði sem fram fór fram í september í samræmi við lög um skipan opinberra framkvæmda. Nemendur frá heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands vottuðu samninginn. Ásgeir Loftsson, framkvæmdastjóri LNS Saga ehf., undirritaði samninginn fyrir hönd fyrirtækisins.
Sjúkrahótelið er hluti af fyrsta áfanga uppbyggingar Nýs Landspítala (NLSH) við Hringbraut. Það rís á norðurhluta lóðar spítalans milli kvennadeildar, K-byggingar og Barónsstígs og verður tekið í notkun árið 2017. Í sjúkrahótelinu verða 75 herbergi og með tilkomu þess breytist aðstaða fyrir sjúklinga og aðstandendur mjög til batnaðar.
Aðalhönnuður sjúkrahótelsins er KOANhópurinn en forhönnun, skipulagsgerð, hönnun gatna og lóðar er unnin af SPITALhópnum. Húsið verður prýtt með steinklæðningum, listaverki eftir Finnboga Pétursson myndlistarmann.
Sjúkrahótelið verður fjórar hæðir og kjallari. Byggingin er 4.258 fermetrar að stærð (brúttó), 14.780 rúmmetrar (brúttó) með kjallara og tengigöngum. Hótelið mun tengjast barnaspítala og kvennadeild um tengigang. Samningsfjárhæð er samkvæmt tilboði verktaka og ákvæðum útboðsgagna, kr. 1.833.863.753,- með vsk.
Framkvæmdir hefjast fljótlega á lóð Landspítala. Í fyrstu er þar um að ræða gerð bráðabirgðabílastæða á svæðinu sunnan við aðalbyggingu Landspítala sem koma í stað annarra stæða sem verður lokað tímabundið þegar framkvæmdir hefjast við byggingu sjúkrahótelsins. Þessari framkvæmd verður lokið um miðjan desember.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra:
„Þetta er ánægjulegur dagur sem markar ákveðin tímamót. Nýtt sjúkrahótel mun bæta þjónustu við sjúklinga og aðstandendur þeirra strax og það er risið. Mestu skiptir þó sú staðreynd að með þessum fyrsta áfanga eru verklegar framkvæmdir við uppbyggingu þjóðarsjúkrahúss hafnar. “
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala:
„Dagurinn í dag markar upphaf uppbyggingar nýs Landspítala. Mikilvægum áföngum er náð, bæði með byggingu sjúkrahótelsins og með vinnu við fullnaðarhönnun meðferðarkjarnans sem verður hjartað í starfsemi nýs spítala. Við sjáum því árangur þrotlausrar vinnu síðustu ára og getum farið að horfa til framtíðar. Nýtt og betra þjóðarsjúkrahús er hagsmuna- og öryggismál okkar allra.“
Ásgeir Loftsson, framkvæmdastjóri LNS Saga:
„Við erum þakklát fyrir það traust sem okkur er sýnt við undirritun þessa samnings. Verkefnið fellur vel að þekkingu og reynslu fyrirtækisins og starfsmanna þess. Það er spennandi að taka þátt í verkefninu og við munum gera okkar ýtrasta til að það uppfylli væntingar verkkaupa og í góðri sátt við nágranna.“
Ljósmynd: Skóflustunga tekin að nýju sjúkrahóteli Landspítala 11. nóvember 2015 - Heilbrigðisráðherra henti torfunni hátt á loft við mikinn fögnuð viðstaddra.