Sérfræðilæknir í blóðlækningum
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í blóðlækningum. Starfið veitist frá 1. september 2025 eða eftir nánara samkomulagi og starfshlutfall 60-100%.
Við blóðlækningar starfa 7 sérfræðilæknar í þverfaglegu teymi á legu-, dag- og göngudeild og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga.
- Vinna á legu-, dag- og göngudeild ásamt vaktþjónustu við blóðlækningadeild Landspítala
- Vinna við samráðskvaðningar á aðrar deildir Landspítala og þátttaka í samráðsfundum
- Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samvinnu við yfirlækni
- Viðfangsefni tengd almennum lyflækningum í samráði við yfirlækni
- Íslenskt sérfræðileyfi í almennum lyflækningum með blóðlækningar sem undirsérgrein
- Breið þekking og reynsla í almennum lyflækningum
- Mikil reynsla af kennslu og rannsóknum
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu, gæðavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir, læknir með lækningaleyfi
Íslenskukunnátta 4/5