Deildarstjóri kjaradeildar
Landspítali auglýsir eftir öflugum einstaklingi, með mikla reynslu af kjara- og mannauðsmálum, til að leiða kjaradeild spítalans. Á deildinni er unnið að gerð og eftirfylgni stofnanasamninga, túlkun og framkvæmd kjarasamninga og mótun verklags við launasetningu starfa og starfsfólks. Starfsfólk deildarinnar situr í samstarfsnefndum hátt í 30 stéttafélaga innan spítalans og vinnur að samskiptum við þau félög og kjaraþróun viðkomandi starfsmannahópa.
Á kjaradeild starfa 5 einstaklingar og tilheyrir deildin rekstrar- og mannauðssviði. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri rekstrar- og mannauðssviðs.
Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem brennur fyrir málstað spítalans og hefur þekkingu og reynslu af starfssviðinu. Starfið er ábyrgðarmikið og krefjandi og reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfni.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust 1. september 2023 eða eftir nánara samkomulagi.
- Fagleg forysta um framkvæmd og túlkun kjarasamninga, gerð stofnanasamninga og launaröðun
- Stefnumótun og innleiðing verklags og ferla í kjaramálum
- Ráðgjöf um launasetningu og samhæfing
- Ábyrgð á jafnlaunastjórnunarkerfi spítalans og verðmætamati starfa
- Umsjón með upplýsingamiðlun, úttektum og fræðslu um kjaramál
- Seta í samstarfsnefndum og samskipti við stéttarfélög og fleiri ytri aðila
- Rekstur og stjórnun deildarinnar
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af kjara- og mannauðsmálum
- Reynsla af samningagerð
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
- Reynsla og færni í stjórnun og teymisvinnu
- Greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Góð íslenskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið, afrit af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á faglegu og stöðluðu matsferli.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum og hefur Landspítali hlotið jafnlaunavottun.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Öllum umsóknum verður svarað.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, stjórnunarstörf, sérfræðistörf, deildarstjóri