Skrifstofumaður/ Teymisstjóri blóðlækninga í móttöku dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga á Landspítala leitar eftir öflugum teymisstjóra skrifstofuþjónustu/ móttöku. Teymisstjórinn ber ábyrgð á daglegum verkefnum einingarinnar í samræmi við stefnu og gildi Landspítala.
Starfið felst m.a. í að vinna að aukinni skilvirkni og öryggi í móttöku- og bókunarþjónustu dag- og göngudeildarinnar sem og öðrum þáttum í nánu samstarfi við deildarstjóra, yfirlækna og annað starfsfólk deildarinnar. Teymisstjóri mun sjá um daglegt skipulag og mönnun, tryggja þjálfun og bestu þekkingu til starfsins á hverjum tíma og vinna með sínu teymi að virkri framþróun þjónustu við ört vaxandi skjólstæðingahóp auk almennra starfa skrifstofumanns í móttöku.
Leitað er að einstaklingi með brennandi áhuga á að vinna með stjórnendum og starfsfólki að skilvirkni, framþróun og öryggi í þjónustu á Landspítala.
Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 1. september 2025 eða eftir nánari samkomulagi.
Næsti yfirmaður er deildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga.
- Þátttaka í daglegum rekstri og skipulag verkefna í móttöku
- Umsjón og eftirlit með bókunum sjúklinga
- Skipulagning og samræming á tímabókunum
- Tryggja góða nýtingu dag- og göngudeildaraðstöðu og innleiða hugbúnaðarlausnir því tengdu (stofusýn)
- Kortlagning og skjalfesting á ferlum er varða bókun sjúklinga á dag- og göngudeild
- Umsjón og eftirlit með mælikvörðum og gæðavísum sem þjónustan byggir á
- Almenn og sérhæfð ritarastörf í móttöku á deild
- Náið samstarf við stjórnendur, gæðastjóra og verkefnastjóra sviðs við uppbyggingu gæðakerfis og skjalfestingu verklags í gæðahandbók Landspítala
- Náið samstarf við aðra teymisstjóra skrifstofuþjónustu innan krabbameinsþjónustu með samræmingu verklags að leiðarljósi
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. heilbrigðisgagnafræði er kostur
- Þekking og reynsla af skrifstofustörfum og/ eða starfsemi sjúkrahúsþjónustu er kostur
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Sýnir fagmennsku, umhyggju og virðingu í samskiptum
- Hæfni til að miðla upplýsingum til ólíkra hópa
- Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi
- Hæfileiki til að tileinka sér nýjungar
- Góð tölvufærni og áhugi á tækniþróun
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisgagnafræðingur, ritari, móttaka, skrifstofustörf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5