Landspítali er á neyðarstigi.
Staðan kl. 10:00
23 sjúklingar liggja á Landspítala vegna COVID-19. Sjö eru á gjörgæslu, sex þeirra í öndunarvél.
Kona á níræðisaldri lést á spítalanum á gamlársdag vegna Covid-19.
7.023 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 1.601 barn.
Frá upphafi fjórðu bylgju, 30. júní 2021, hafa verið 269 innlagnir vegna COVID-19 á Landspítala.
Talnaupplýsingar um stöðuna á spítalanum eru birtar á www.landspitali.is.