Ársskýrsla Rannsóknarstofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ) 2019 hefur verið birt á vefsíðu rannsóknarstofunnar. Í henni er meðal annars rakið ítarlega að hvaða verkefnum var unnið að á árinu 2019, þar á meðal hvaða doktorsverkefnum. RHLÖ tók þátt í Evrópurannsókninni SPRINTT um hrumleika og vövarýrnun sem lauk árið 2019 og er gerð grein fyrir því. Rannsóknarstofan stendur líka fyrir ýmis konar fræðslu og fundum sem snúa að öldrunarmálum.
Árið 2019 voru fjórtán rannsakendur við RHLÖ, þar af níu doktorsnemar, sex í rannsóknartengdum verkefnum og tveir meistaranemar.
Meginhlutverk rannsóknarstofunnar er að vera miðstöð í öldrunarfræðum og skapa aðstöðu til rannsókna, styðja við rannsóknir og fræðslu auk þess að stuðla að samvinnu og samstarfi fræðimanna og Landspítala sem tengjast öldrun.