Á skurðstofum við Hringbraut er í gangi mjög mikilvægt verkefni til að auka öryggi sjúklinga við inngöf blóðhluta sem felst í því að sjúklingar sem fara í hjartaaðgerðir fá ný armbönd með strikamerkjum. Ef gefa þarf sjúklingi blóðhluta meðan á aðgerð stendur er strikamerki sjúklings skannað á móti strikamerkjum á blóðhlutapokum. Með þessu er tryggt að sjúklingur fái aðeins þá blóðhluta sem Blóðbankinn tók frá fyrir aðgerðina. Viðvörun er birt ef af einhverjum ástæðum blóðhlutapokinn eða sjúklingurinn passa ekki saman.
Um er að ræða tilraunarverkefni heilbrigðis- og upplýsingatæknideildar (HUT), Blóðbankans og aðgerðarsviðs.
Þess má geta að ákveðið hefur verið að skipta núverandi armböndum út fyrir hin nýju strikamerktu armbönd og lýkur því verkefni á næst ári, 2016.