Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Styrktar- og verðlaunasjóði Bent Scheving Thorsteinsson. Sjóðurinn var stofnaður með framlagi Bent Scheving Thorsteinsson 4. júlí 2007. Úthlutað verður úr sjóðnum á ársfundi Landspítala 5. maí 2011.
Markmið og hlutverk sjóðsins er að veita styrki og verðlaun fyrir vísindaleg afrek, rannsóknir, ritgerðir og skylda starfsemi á sviði hjartalækninga og hjarta- og lungnaskurðlækninga. Hægt er að sækja um styrki til tækjakaupa á sama sviði.
Umsóknarfrestur rennur út 15. apríl 2011.
Umsóknum skal skila á skrifstofu forstjóra, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík.
Umsóknareyðublað - smellið hér.
Skylt efni:
Styrktar- og verðlaunasjóður Bent Scheving Thorsteinsson