Starfsmennirnir á St. Jósefsspítala hafa lýst ótta sínum og sorg yfir þessum breytingum. Björn Zoëga forstjóri ávarpaði starfsmennina og svaraði fyrirspurnum, ásamt Vilhelmínu Haraldsdóttur, framkvæmdastjóra lyflækningasviðs, Ernu Einarsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðssviðs og Jóni Hilmari Friðrikssyni, framkvæmdastjóra kvenna- og barnasviðs.
Jón Hilmar hefur fengið það hlutverk að stýra þeim breytingum sem verða á starfseminni á Landspítala Hafnarfirði á næstunni. Sex manna verkefnisstjórn, skipuð fulltrúum Landspítala og St. Jósefsspítala, gerði tillögu um að flytja alla skurðstofustarfsemi og handlækningadeild frá St. Jósefsspítala yfir á Landspítala, svo og alla starfsemi meltingarlækninga. Hins vegar er gert ráð fyrir því að legudeild almennra lyflækninga verði áfram í húsnæði St. Jósefsspítala með áherslu á sjúklinga sem ekki eru bráðveikir heldur að ljúka meðferð, endurhæfingu eða bíða eftir frekari úrræðum innan spítala sem utan.
Starfsmennirnir á St. Jósefsspítala eru nú starfsmenn Landspítala og engum er sagt upp vegna sameiningarinnar. Ekki liggur þó fyrir hvort þeir kjósa allir að vera það áfram. Á kynningarfundinum kom fram að starfsmönnunum býðst aðstoð mannauðssviðs Landspítala vegna hvers kyns starfsmannamála sem geta reynst flókin og erfið við sameiningu stofnana.
Af hálfu Landspítala var lögð áhersla á að vandað yrði til verka í því breytingarferli sem nú fer í hönd vegna sameiningar St. Jósefsspítala og Landspítala og allt gert til þess að það kæmi í engu niður á sjúklingum.
Skylt efni:
Landspítali og St. Jósefsspítali í Hafnarfirði sameinast 1. febrúar