Leit
Loka

Átröskunarteymi BUGL

Átröskunarteymið er sérhæft teymi göngudeildar sem sinnir greiningu og meðferð hjá börnum eða unglingum.

Banner mynd fyrir  Átröskunarteymi BUGL

Hvernig er best að ná í okkur?

Teymið er staðsett á göngudeild BUGL við Dalbraut 12, 105 reykjavík

Ef grunur er um átröskun, vinsamlegast hafið samband við heilsugæslu.

Tilvísun á BUGL ásamt leiðbeiningum

Hagnýtar upplýsingar

Átröskunarteymið er sérhæft teymi göngudeildar sem hefur  aðkomu að málum þar sem líklegt er um átröskun sé að ræða hjá barni eða unglingi.

Átröskunarteymið veitir bæði greiningu og meðferð.

Meðferðin miðar að því að hjálpa barni/unglingi að takast á við veikindin með stuðningi foreldra og fagfólks

Lögð er áhersla á að barnið og foreldrarnir læri nýjar og betri leiðir til að takast á við átröskunina og fái betri innsýn í hvaða þættir hindra bata.

Leitast er við að efla sjálfsmynd, líkamsmynd, félagslega færni og samskipti í fjölskyldu í því skyni að bæta líðan og lífsgæði til lengri tíma.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?