Leit
Loka

Bráðamóttakan í Fossvogi

Bráðamóttaka sinnir móttöku veikra og slasaðra. Hún er opin allan sólarhringinn og er sú stærsta á landinu. ATHUGA: Bráðaþjónusta við hjartasjúklinga sem áður var á Hjartagátt við Hringbraut er á bráðamóttökunni í Fossvogi.

Deildarstjóri

Ágústa Hjördís Kristinsdóttir

Yfirlæknir

Mikael Smári Mikaelsson

BráðamóttakaNeyðarlínan 112

Eitrunarmiðstöð 543 2222

Banner mynd fyrir  Bráðamóttakan í Fossvogi

Hafðu samband

OPIÐAllan sólarhringinn alla daga

Göngudeildarþjónusta kl. 8:00-23:00

Bráðamóttaka - mynd

Hér erum við

Fossvogur-Bráðamóttaka G álma 1. hæð

Sjá staðsetningu á korti

Hagnýtar upplýsingar

Helstu símanúmer

  • Neyðarnúmer: 112
  • Skiptiborð LSH: 543 1000
  • Eitrunarmiðstöð: 543 2222
  • Áfallahjálp: 543 1000
  • Neyðarmóttaka: 543 1000
  • Heilsugæslan veitir símaráðgjöf, sjá: www.heilsugaeslan.is

Um bráðamóttökuna

Bráðamóttakan í Fossvogi sinnir móttöku veikra og slasaðra.  Hún er opin allan sólarhringinn og er sú stærsta á landinu.  Þangað leita að meðaltali 200 sjúklingar á dag.

Til að tryggja öryggi allra sjúklinga þarf að forgangsraða einstaklingum eftir eðli og alvarleika veikinda eða slyss.  Hjúkrunarfræðingur skoðar og metur alla sem koma á bráðamóttöku strax við komu. Fólki er forgangsraðað og flokkað samkvæmt fimm flokka forgangsflokkunarkerfi þar sem að mest aðkallandi vandamálum er sinnt fyrst.  Þegar hjúkrunarfræðingur hefur lagt mat á eðli áverka eða alvarleika veikinda er sjúklingnum vísað í viðeigandi farveg.

Á bráðamóttökunni eru 30 rúmstæði fyrir sjúklinga. Deildinni er skipt í svæði A, B og skammverueiningu.  Vaktstöðvar eru á hverju svæði fyrir sig. Auk þess eru gipsherbergi og skoðunarherbergi fyrir sjúklinga með háls-, nef- og eyrnavandamál.

Rafræn skráning er í sjúkraskrá, þar með telst meðferðarseðill hjúkrunar, NOMESCO (samnorræn slysaskráning) og Slysaskrá Íslands.

Bílastæði

Til að tryggja að ávallt séu næg bílastæði fyrir þá sem þurfa að leita á bráðamóttökunai eru gjaldskyld bílastæði næst húsnæðinu. 

Almannavarnir

Bráðamóttakan í Fossvogi gegnir veigamiklu hlutverki í skipulagi almannavarna og þar er aðsetur hópslysastjórnar Landspítala.

Greiningarsveit sem í eru tveir hjúkrunarfræðingar og tveir læknar er mönnuð af starfsfólki bráðamóttökunnar og send á vettvang sé þess óskað af Almannavörnum.

Allur hópslysabúnaður er geymdur í húsnæði bráðamóttökunnar.

 

Opið 8:00-16:00 virka daga.

Eftirmeðferð fyrir fólk sem hefur verið hjá bæklunarlæknum og bráðalæknum undangengna 12 mánuði eða eftir tilvísun sérfræðinga utan spítalans.

ATH! Ekki hægt að hringja og panta tíma.

 

Göngudeild bæklunarskurðdeildar (endurkomudeild)

Við neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisafbrota vinna sérþjálfaðir hjúkrunarfræðingar og læknar, lögmenn, sálfræðingur, sérfræðingar sýkladeildar og Rannsóknastofu Háskólans í réttarlæknisfræði.

Unnið er í samvinnu við lögreglu og embætti Ríkislögreglustjóra.

Vefsíða neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis

Á bráðamóttökunni er upplýsingamiðstöð um eitranir.

Læknar svara símafyrirspurnum og veita ráðgjöf um viðbrögð og meðferð við eitrunum í samráði við bakvakt eitrunarmiðstöðvarinnar.

Vefsíða eitunarmiðstöðvarinnar

Eitrunarsíminn er 543 2222

Vefsíða áfallamiðstöðvar

Áfallamiðstöð á Landspítala veitir þeim sem leita til bráðamóttökunnar í Fossvogi sálrænan stuðning og aðstoð við tilfinningalega úrvinnslu nýlegra alvarlegra áfalla. Auk þess sinnir starfsfólk miðstöðvarinnar þeim beiðnum sem berast um ráðgjöf og áfallahjálp innan Landspítala. Miðstöðin veitir líka ráðgjöf fyrir heilbrigðisþjónustu á landinu öllu um áföll og afleiðingar þeirra.


Á bráðamótökunni í Fossvogi er átta rúma skammverueining.  Þar vistast sjúklingar með viss bráð vandamál sem þarfnast frekari meðferðar, greiningar eða eftirlits í 4-24 klukkustundir.  Skammverueiningin er ætluð lágáhættu sjúklingahópi með afmörkuð vandamál sem ætla má að megi leysa innan sólarhrings. að því marki að sjúklingurinn verði heimferðarfær.

Tilgangur

  • Veita sjúklingum með ákveðin vandamál fyrsta flokka bráðameðferð 
  • Auka öryggi og draga úr áhættu vegna ótímabærra útskrifta af bráðamóttöku 
  • Bæta sjúklingaflæði og stytta biðtíma á bráðamóttöku 
  • Fækka innlögnum og stytta legutíma svo nýta megi betur tiltæk aðföng og legurými 

Markmið

  • Fækka innlögnum á legudeildir 
  • Koma í veg fyrir ótímabærar útskriftir af bráðamóttöku 
  • Gera tíma þeirra sem þurfa að dveljast á skammverueiningu markvissari með verklagi sem byggir á gagnreyndum (evidence based) leiðbeiningum um meðferð 

Símanúmer á skammverueiningu: 543 2262

Á bráðamóttökunni er vígð kapella.

Starfsmönnum bráðamóttökunnar er umhugað um góða umönnun sjúklinga, aðstandenda og nákominna við andlát sjúklinga.
Hugað er vel að þörfum aðstandenda í samvinnu við presta og djákna spítalans.

Við andlát er haldin kveðjustund fyrir þá sem það vilja. 

Ef voveigleg andlát eiga sér stað utan spítala, svo sem við slys og sjálfsvíg, er í boði að koma með hinn látna á deildina. Þá er aðstandendum sinnt og haldin kveðjustund í kapellunni.

Afrit af sjúkraskrá

Til að nálgast afrit af sjúkraskrá frá bráðamóttöku þarf að koma skrifleg beiðni frá sjúklingi eða umboðsmanni hans.
Hægt er að senda rafræna umsókn með því fylla út þetta form.  

Afrit sjúkraskrár skal afhent sjúklingi eða umboðsmanni hans gegn greiðslu fyrir ljósritunarkostnað. Viðtakandi skal kvitta fyrir móttöku gagnanna. Nauðsynlegt er að hafa skilríki með sér til að fá gögnin afhent.

Maki eða ættingjar, þó nákomnir séu, hafa ekki rétt til að fá afrit sjúkraskrár án umboðs.

IN ENGLISH:

Certificate from Doctors

To access the Certificate from the Emergency Department at Landspitali Fossvogur, patients should contact the Medical receptionist at phone number 543 1000. Hours of availability are Mondays,Tuesdays and Wednesdays at 10:00-11:00. Certificates - Fees

Medical report

To get a copy of the Medical report from the Emergency Department the patient, or his agent, must write a request to sjukraskra@landspitali.is.

Copies of the medical report shall be delivered to the patient, or his agent, for payment for photocopying cost. Recipient shall acknowledge receipt of the data. It is necessary to have a certificate to get the data delivered.
Spouse, relatives or others however closely related, have no right to receive a copy of medical report without a written consent from the patient.

 

Hjúkrunarfræðingar bráðamóttökunnar veita símaráðgjöf fyrir þá skjólstæðinga sem hafa leitað til hennar.

Gagnagrunnur Medic Alert er vistaður á bráðamótttökunni.
Hjúkrunarfræðingar bráðamóttökunnar annast símsvörun fyrir Medic Alert..

.


Á bráðamóttökunni er mikið um kennslu og verklega þjálfun nemenda.

Flestir eru nemarnir frá læknadeild og hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands en einnig er kennsla og verkleg þjálfun fyrir nema í heilbrigðisfræðum við Háskólann á Akureyri, Háskólann í Reykjavík, sjúkraflutningamenn (EMT-b, EMT-I, neyðarflutningsnám), stýrimanna- og vélskólanema og fleiri. Auk þess er alltaf eitthvað um erlenda nema.

Nemendafjöldinn er mikill og kennslurýmin umsetin enda er deildin ein sinnar tegundar á landinu.
Nærri lætur að um 300-400 nemar komi á bráðamóttökuna árlega og staldri við frá einum degi og upp í sex vikur.

Yfirlæknir: Mikael Smári Mikaelsson mikaelsm@landspitali.is

Deildarstjóri: Ágústa Hjördís Kristinsdóttir ahjordis@landspitali.is

Hjúkrunarritari: Ingibjörg Ragnarsdóttir ingibjr@landspitali.is

Rekstrarstjóri: Albert G. Arnarson albertg@landspitali.is

Um nokkra staði getur verið að ræða þegar leita þarf til heilbrigðisstétta eftir aðstoð og flókið fyrir þann sem ekki þekkir til að rata á réttan stað.

Starfsfólk bráðamóttöku Landspítala vill leggja sitt af mörkum í þágu skjólstæðinga sinna til að greiða götu þeirra sem þurfa á þjónustu heilbrigðiskerfisins að halda, innan og utan Landspítala.

Nánar hér

Tengd starfsemi og þjónusta

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?