Leit
Loka

Áfallamiðstöð

Sálrænn stuðningur og aðstoð við tilfinningalega úrvinnslu nýlegra alvarlegra áfalla.

Banner mynd fyrir  Áfallamiðstöð

Hafðu samband

Áfallamiðstöð - mynd

Hér erum við

Bráðamóttaka Fossvogi

Finna okkur á korti

Hagnýtar upplýsingar

Áfallamiðstöð á Landspítala veitir þeim sem leita til bráðamóttökunnar í Fossvogi sálrænan stuðning og aðstoð við tilfinningalega úrvinnslu nýlegra alvarlegra áfalla. Auk þess sinnir starfsfólk miðstöðvarinnar þeim beiðnum sem berast um ráðgjöf og áfallahjálp innan Landspítala. Miðstöðin veitir líka ráðgjöf fyrir heilbrigðisþjónustu á landinu öllu um áföll og afleiðingar þeirra.

Áfallahjálp er skammtímainngrip með áherslu á forvarnir og mat á þörf fyrir tilvísun í frekari eftirfylgd. Starfsfólk áfallamiðstöðvar vinnur á dagvinnutíma og áfallahjálp er því einungis veitt á þeim tíma. Veittur er sálrænn stuðningur við móttöku og aðhlynningu. Í framhaldi af því er metin þörf fyrir sérhæfðari stuðning og skrifuð beiðni til starfsfólks áfallamiðstöðvar ef þörf er á. Sambærilegt mat getur einnig átt sér stað fyrir inniliggjandi sjúklinga á deildum Landspítala.

  • Starfsfólks áfallamiðstöðvar metur andleg/líkamleg viðbrögð í kjölfar áfalls.
  • Aðstoð er veitt við úrvinnslu áfalls.
  • Veitt er fræðsla um algeng og eðlileg streituviðbrögð í kjölfar áfalla.
  • Unnið er að styrkingu bjargráða og stuðningskerfa. 
  • Áhættuþættir m.t.t. áfallastreituröskunar eru metnir og vísað í sérhæft úrræði ef þörf er á.
  • Fylgt er lögum um tilkynningaskyldu til barnaverndaryfirvalda.
  • Markmið áfallamiðstöðvar Landspítala er að tryggja velferð þeirra sem leita eftir þjónustu;
    - Nýleg áföll þar sem lífi eða limum er ógnað
    - Þolendur líkamsárása, heimilisofbeldis og alvarlegra slysa
    - Þeir sem verða vitni að sérlega alvarlegum áföllum, t.d. komið að sjálfsvígum
    

 

Áfallamiðstöð Landspítala tekur við beiðnum og tilvísunum frá:

  • deildum Landspítala
  • fagaðilum utan Landspítala eftir því sem tök eru á

Áfallateymi Landspítala er einungis virkjað á neyðartímum skv. útkalli almannavarnardeildar Ríkislögreglustjórans eða samkvæmt viðbragðsáætlun Landspítala.

 

Tengd starfsemi og þjónusta

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?