Leit
Loka

Málþing um byltuvarnir

17. september 2019

Banner mynd fyrir  Málþing um byltuvarnir

Hagnýtar upplýsingar

Skráningu er lokið fullt er á málþingið!

ATH. Ekki  er lengur hægt að skrá sig og biðlisti orðin of langur.

Byltur og afleiðingar þeirra er ein af ástæðum lélegra heilsufars á meðal aldraðra. Hrörnunarbreytingar tengdar auknum aldri hafa fundist í öllum líkamskerfum sem koma að stjórn jafnvægis og eftir því sem þær ágerast eykst óstöðugleiki og líkur á byltum. Margir áhrifaþættir eru til staðar þegar kemur að byltum til að mynda hreyfingarleysi, saga um fyrri byltur, vannæring, heilabilun, fjöldi lyfja og hættur í umhverfi.

Vandamálið er margþætt og brýn þörf er á að kortleggja byltur á meðal aldraðra með því að fjalla um byltur á sem þverfaglegastan hátt. Von skipuleggjenda er því sú að málþingið leiði af sér hugmyndir að fyrirbyggjandi aðgerðum og að málefnið-byltur, fái tilskylda athygli á samfélagsgrundvelli.

Staðsetning: Hringsalur Landspítala.

Aðgangur er  ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig vegna takmarkaðs sætafjölda.

Dagskrá >

 


Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?