Leit
Loka

Vísindi á vordögum 2025

Banner mynd fyrir  Vísindi á vordögum 2025

Vísindi á vordögum er uppskeruhátíð vísindastarfs á Landspítala sem hefur verið haldin árlega í 25 ár en hún hefur verið haldin árlega síðan 2001 og að venju í lok apríl eða byrjun maí. Á hátíðinni er farið yfir árangur af vísindastarfi á Landspítala árinu áður, framúrskarandi vísindamenn spítalans heiðraðir, veittar viðurkenningar og verðlaun auk þess sem styrkir úr Vísindasjóði Landspítala og aðrir styrkir eru afhentir með formlegum hætti.

Það voru þau Gísli Einarsson fyrrum yfirlæknir og framkvæmdastjóri Kennslu, Vísinda og Þróunar á Landspítala og Sigurlaug Sveinbjörnsdóttir taugalæknir sem hófu þessa vegferð. Hátt í 60 veggspjöld eru kynnt á hátíðinni í ár og má segja að gangar Barnaspítala Hringsins séu veggfóðraðir með vísindum eins og fyrra ár. Framúrskarandi vísindafólk er heiðrað, verðlaun veitt og styrkir formlega afhentir. Með vor í hug og hjarta er litið yfir nýliðið ár í vísindastarfi á Landspítala og horft björtum augum til framtíðar.

Vísindaráð Landspítala ber veg og vanda að dagskrá og skipulagi Vísinda á vordögum.

 

Fjöldi þeirra sem heimsóttu vefsíðu veggspjalda mældist mun meiri en á hefðbundinni veggspjaldasýningu. Þó má ekki draga úr mikilvægi þess að hitta og ræða við vísindamennina sjálfa og fræðast um verk þeirra. Enn verðum við að bíða aðeins með það því að veggspjaldakynningin verður nú aftur á rafrænu formi. Í ár verða hins vegar einnig hengd upp veggspjöld þeirra vísindamanna sem það kjósa fyrir framan Hringsalinn, gestum og gangandi til skemmtunar og fróðleiks, og til marks um grósku vísindanna á Landspítala.

Í vinnslu...

Hlutverk Landspítala er þríþætt; Að veita heilbrigðisþjónustu, skapa nýja þekkingu með rannsóknum og mennta heilbrigðisstarfsfólk. Nauðsynlegt er að haldið sé vel utan um þá grunnstoð sem vísindastarfið er enda er það deginum ljósara að vísindi auka fagmennsku, gæði og öryggi og eru forsenda framþróunar í heilbrigðisþjónustu og menntun starfstétta.

Starfsmenn vísindadeildar hafa til margra ára tekið saman árlegt yfirlit um vísindastarf á Landspítala og birtir hina árlegu samantekt á Vísindum á vordögum ár hvert. Gagna sem eru lýsandi fyrir virkni í vísindum s.s. birtingar vísindagreina, styrkfjárhæðir til vísindarannsókna, fjöldi nýrra vísindarannsókna, fjöldi meistara- og doktorsnema er víða aflað og er yfirlitið unnið í samstarfi við forstöðumenn og forsvarsmenn fræðisviða og fræðigreina auk tengiliða.  Regluleg úttekt á vísindastarfinu og niðurstöður hennar er mikilvægur þáttur í að meta árangur vísindastefnu Landspítala á hverjum tíma auk þess sem yfirgripsmikil þekking á áhrifum aðgerða í þágu vísindastarfs næst.

Yfirlit 2024:

  • Vísindastarfið 2024 (litla heftið)
  • Vísindastarfið 2024 (stóra heftið)

 

Sjá einnig yfirlit síðustu ára: 

 

Safn yfirlita: Yfirlitsskýrslur

Ársskýrsla vísindaráðs 2024

Tilgangur sjóðsins er að styðja við vísindastarf starfsfólks Landspítala með því að hvetja vísindafólk til að birta rannsóknir sínar í erlendum tímaritum með háan áhrifastuðul og verja tíma sínum í leiðandi hlutverki í metnaðarfullum rannsóknarverkefnum. Umsækjendur þurfa að vera fyrsti eða síðasti höfundur á vísindagrein sem lýsir rannsóknaniðurstöðum verkefna sem unnin eru á Landspítala og eru merktar honum eins og fram kemur í 2. grein í reglum sjóðsins. Starfsmenn í a.m.k. 50% starfi geta sótt í sjóðinn. Ef fyrsti og síðasti höfundur birtrar greinar eru báðir starfsmenn eiga þeir báðir kost á að sækja um í sjóðinn. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að vísindagreinin hafi birst í viðurkenndu ritrýndu erlendu fagtímariti og fer upphæð styrks eftir flokki tímarita eftir áhrifastuðli tímarits. Styrkir sem veittir eru úr sjóðnum eru ekki bundnir við að greiða niður birtingarkostnað heldur ræður styrkhafinn hvernig hann nýtir styrkinn. Dagleg umsýsla sjóðsins er í höndum verkefnastjóra Vísindaráðs hjá Vísindadeild.


Birtingasjóður-yfirlit styrkúthlutunar 2024

 

 


Á vefsíðu Landspítala er að finna ýmsar hagnýtar og fræðandi upplýsingar um vísindastarfsemina á spítalanum.

 
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Af hverju ekki?