Hjúkrunarfræðingur á meðgöngu- og sængurlegudeild
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings á meðgöngu- og sængurlegudeild frá 1. mars 2025 eða eftir samkomulagi. Í boði er starf í 50-100% starfshlutfalli. Leitað er eftir hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á að sinna fjölskyldum í barneignarferlinu.
Deildin er 21 rúma deild og þjónar fjölskyldum eftir fæðingu, sem og annast konur sem þurfa innlögn og náið eftirlit á meðgöngu auk bráðaþjónustu. Veitt er fagleg umönnun með fjölskylduhjúkrun að leiðarljósi. Góður starfsandi ríkir á deildinni og mörg tækifæri eru til að vaxa í starfi og styðja við umbætur í þjónustu við skjólstæðinga deildarinnar.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur enn orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf. bráðaþjónusta. Veitt er fagleg umönnun með fjölskylduhjúkrun að leiðarljósi.
- Hjúkrunarfræðingur veitir skjólstæðingum umönnun í samráði við þá og ber ábyrgð á störfum sínum samkvæmt starfslýsingu
- Virk þátttaka í teymis- og umbótastarfi á deild
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Öguð og skipulögð vinnubrögð
- Faglegur metnaður
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5