Heilbrigðismenntaður starfsmaður á lungnarannsóknarstofu
Við leitum eftir áhugasömum og framsæknum einstaklingi til starfa í 80% starfshlutfall á lungnarannsóknarstofu á A3 göngudeild lyflækninga Landspítala Fossvogi.
Á lungnarannsóknarstofu eru framkvæmdar ýmsar lífeðlisfræðilegar rannsóknir sem notaðar eru til greiningar, meðferðar og eftirlits á lungnasjúkdómum. Rannsóknarstofan vinnur í samstarfi við ýmsar sérgreinar innan Landspítala.
Mjög góður starfsandi er á einingunni. Starfið er fjölbreytt og gefur möguleika á þátttöku í vísindavinnu sem unnin er í samstarfi við sérfræðilækna Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Við erum að fjölga í starfsmannahópnum og er starfið því laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
- Framkvæmd rannsókna til greiningar lungnasjúkdóma
- Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í kennslu nema á heilbrigðisvísindasviði
- Þátttaka í þróun og vísindavinnu
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
- Íslenskt starfsleyfi á heilbrigðissviði, t.d. hjúkrunarfræði, sjúkraþjálfun, lífeðlisfræði, sjúkraliði eða annað nám sem nýtist í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð samskiptafærni
- Reynsla af framkvæmd öndunarmælinga og vísindavinnu er kostur
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sjúkraþjálfari, lífeðlisfræðingur, rannsóknir, sjúkraliði
Tungumálahæfni: íslenskukunnátta: 4/5