Skurðhjúkrunarfræðingur á göngudeild augnsjúkdóma
Við óskum eftir að ráða skurðhjúkrunarfræðing í dagvinnu á göngudeild augnsjúkdóma á Eiríksgötu 5. Göngudeildin er miðstöð augnsjúkdóma í landinu og skiptist í göngudeild, dagdeild og skurðstofur.
Verkefnin eru fjölbreytt og fela í sér fyrst og fremst hjúkrun á sérhæfðum skurðstofum tengt aðgerðum á augum, undirbúning fyrir augnaðgerðir og þátttöku í verkefnum deildarinnar. Á deildinni ríkir góður starfsandi og þverfaglegt samstarf. Við leitum eftir framsæknum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi með reynslu af skurðhjúkrun sem hefur áhuga á augnsjúkdómum.
Í boði er
- Fjölbreytt, tæknilegt og líflegt starf
- Einstaklingsmiðuð starfsþjálfun
- Starfsþróun með skipulagðri fræðslu
- Möguleiki á að styðja við frekari starfsþjálfun með námsheimsókn/stuðning við sérnám í augnhjúkrun erlendis
- Sérhæft starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og þverfaglegt samstarf
- Dagvinna, 40-60% starfshlutfall
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Hjúkrun aðgerðarsjúklinga og önnur aðstoð á skurðstofu við augnaaðgerðir og lyfjagjafir í augu
- Önnur störf hjúkrunarfræðings í móttöku augnsjúklinga: Fræðsla, forskoðanir, sjónmælingar, sjónsviðsmælingar og augnbotnamyndatökur ásamt undirbúningi fyrir aðgerðir
- Önnur tilfallandi verkefni
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Viðbótarnám í skurðhjúkrun
- Faglegur metnaður og frumkvæði
- Góð samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á að taka þátt í þróun verkferla og gæðaverkefna
- Reynsla af hjúkrun augnsjúklinga er kostur
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Tekin hefur verið ákvörðun um að framlengja umsóknarfrest vegna ofangreinds starfs. Umsóknarfrestur var til 18.07.2024, en verður þess í stað 06.08.2024.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, dagvinna
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5