Öryggisvörður - vaktavinna hjá öryggisþjónustu Landspítala
Öryggisþjónusta Landspítala vill ráða til starfa sveigjanlegan einstakling við öryggisþjónustu. Um er að ræða fullt starf og er starfið laust frá janúar 2024 eða fyrr og unnið er í vaktavinnu. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og býður upp á lifandi starfsumhverfi og gefandi samstarf. Góð íslenskukunnátta er skilyrði og gerð er krafa um 20 ára lágmarksaldur og bílpróf. Framundan eru spennandi tímar á einingunni þar framþróun og betri þjónusta verður höfð að leiðarljósi með tilliti til öryggismála.
Leitað er eftir jákvæðum, drífandi og lausnamiðuðum einstaklingum með ríka þjónustulund. Viðkomandi þarf að búa yfir mikilli samskiptahæfni og getu til að mæta þörfum ólíkra hópa, hafa auga fyrir umbótum og stuðla að jákvæðum starfsanda og starfsumhverfi á fjölþjóðlegum vinnustað.
Megin hlutverk öryggisvarða á Landspítala er að annast öryggis- og vaktþjónustu ásamt öðrum tilfallandi þjónustustörfum. Markmiðið er að tryggja öryggi sjúklinga, starfsfólks og annarra sem erindi eiga á spítalann auk þess að veita góða þjónustu.
- Öryggisgæsla, eftirlit og vöktun öryggis- og hússtjórnarkerfa spítalans
- Þjónusta við aðrar deildir
- Almenn símasvörun utan opnunartíma símaþjónustu spítalans
- Móttaka þjónustubeiðna og upplýsingaþjónusta
- Viðbrögð við neyðartilfellum
- Akstur og eftirlit á húseignum spítalans utan Hringbrautar og Fossvogs
- Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvæðni og þjónustulund
- Metnaður, frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt og í teymum
- Þekking á spítalanum og húsnæði hans er kostur
- Gerð er krafa um 20 ára lágmarksaldur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Gild ökuréttindi
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Tungumálakunnátta: Íslenska: 4/5, enska 3/5
Starfsmerkingar: Þjónustustörf, öryggisgæsla, öryggisfulltrúi, öryggisvörður