Sjóntækjafræðingur - Augnlækningar á Landspítala
Laus er staða sjóntækjafræðings í 40-70% starf við auglækningaþjónustu á Landspítala, Eiríksgötu 5. Um er að ræða nýtt starf í samvinnu við göngudeild augnlækninga við mælingar og rannsóknir á augum ásamt öðrum verkefnum.
Áhugavert og spennandi tækifæri fyrir sjóntækjafræðing sem er tilbúinn í að taka virkan þátt í þróun þjónustu við skjólstæðinga deildarinnar áfram. Unnið er í dagvinnu og er upphaf starfs 1. október 2024 eða skv. samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Augnbotnamyndataka
- Sjón-, sjónsviðs- og, augnmælingar
- Aðrar mælingar/rannsóknir
- Þátttaka í umbótum og gæðastarfi
- Önnur verkefni sem falið er af yfirmanni
- Íslenskt starfsleyfi sem sjóntækjafræðingur
- Faglegur metnaður
- Vönduð og nákvæm vinnubrögð
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sjóntækjafræðingur