Hjúkrunarfræðingur á öldrunarlækningadeild L3
Ert þú umbótadrifinn hjúkrunarfræðingur?
Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á öldrunarhjúkrun, umbótastarfi og þverfaglegu samstarfi. Starfið hentar vel þeim sem vilja vaxa í starfi, þróa faglega sýn í hlýlegu starfsumhverfi.
Öldrunarlækningadeild L3 er staðsett á Landakoti, í hjarta Reykjavíkur, í fallegu og friðsælu umhverfi. Þar dvelja sjúklingar með gilt færni- og heilsumat sem bíða eftir vistun á hjúkrunarheimili. Áhersla er lögð á nærgætin samskipti, mannúðlega nálgun og jákvætt framlag hvers og eins. Við vinnum saman og fögnum nýjum röddum, sjónarhornum og hugmyndum.
Starfshlutfall er 60 - 100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Bryndísi, deildarstjóra.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðinga og bera ábyrgð á meðferð
- Skipuleggja og veita fræðslu til skjólstæðinga og aðstandenda
- Þátttaka í teymisvinnu
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
- Áhugi á hjúkrun aldraðra
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna, umbótastarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5