Hjúkrunarfræðingar - Gjörgæsla Fossvogi
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi. Við leitum eftir gjörgæsluhjúkrunarfræðingum og hjúkrunarfræðingum sem hafa áhuga á hágæslu- og gjörgæsluhjúkrun. Í boði eru áhugaverð og fjölbreytt störf með góðu samstarfsfólki og gott tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga til að þróa með sér faglega þekkingu í meðferð hágæslu- og gjörgæslusjúklinga.
Boðið verður upp á einstaklingshæfða aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðingum er boðið upp á þjálfun s.s. sérhæfð endurlífgunarnámskeið og Basic for Nurses námskeið, hér er því kjörið tækifæri til þróunar á þekkingu. Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala. Við bjóðum nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga sérstaklega velkomna til starfa á deildina.
Unnið er í vaktavinnu skv. vaktaskipulagi deildar. Starfshlutfall er 80-100% og eru störfin laus eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Gjörgæsla heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu og starfa rúmlega 70 starfsmenn, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum og á öðrum deildum spítalans. Deildin þjónar einstaklingum, bæði börnum og fullorðnum, sem þarfnast gjörgæslumeðferðar af margvíslegum ástæðum. Þar er veitt almenn gjörgæslumeðferð ásamt mjög sérhæfðri meðferð sjúklinga með fjöláverka eftir alvarleg slys, höfuðáverka, brunasjúklinga og einstaklinga með alvarlega æðasjúkdóma.
Gjörgæsludeildirnar við Hringbraut og í Fossvogi horfa í auknu mæli til samvinnu og stendur til að sameina deildirnar tvær við flutning í nýjan meðferðakjarna. Samvinna sem þessi getur falið í sér að hjúkrunarfræðingar í Fossvogi aðstoði gjörgæsluna við Hringbraut þegar þannig stendur á og öfugt.
- Veita einstaklingshæfða hjúkrunarmeðferð, ráðgjöf og stuðning til einstaklinga og aðstandenda þeirra
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Virk þátttaka í þróun hjúkrunar og uppbyggingu deildarinnar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Sérnám í gjörgæsluhjúkrun er kostur
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu
- Frumkvæði, faglegur metnaður
- Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5