Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður í móttöku bráðamóttöku
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður óskast til starfa í móttöku bráðamóttöku í Fossvogi. Bráðamóttaka Landspítala sinnir móttöku bráðveikra og slasaðra og er opin allan sólarhringinn. Í boði er spennandi starf í krefjandi og líflegu starfsumhverfi og góður starfsandi. Unnið er á þrískiptum vöktum og er starfið laust 5. ágúst 2025 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Við viljum ráða jákvæðan og þjónustulipran einstakling með góða samskiptahæfni sem er tilbúinn að vinna undir álagi. Góð íslensku- og enskukunnátta er áskilin.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir sem getur orðið enn minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Almenn og sérhæfð ritarastörf, s.s. móttaka sjúklinga, tímabókanir, símsvörun, upplýsingagjöf, útvegun og frágangur gagna og gagnavinnsla í tölvukerfi Landspítala
- Þjónusta við skjólstæðinga, aðstandendur og samstarfsfólk
- Ábyrgð á daglegum viðfangsefnum deildar samkvæmt verklagi
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra
- Heilbrigðisritaranám, stúdentspróf eða annað sambærilegt nám
- Jákvætt viðmót, þjónustulipurð og samskiptahæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Skipulögð vinnubrögð og geta til vinna undir álagi
- Góð tölvukunnátta er nauðsynleg
- Góð íslensku- og enskukunnátta, í máli og riti
- Reynsla af ritarastörfum og þekking á Sögukerfi Landspítala er æskileg en ekki skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, skrifstofustarf, móttaka
Tungumálahæfni: íslenska 5/5, enska 3/5