Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis á myndgreiningardeild Landspítala. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi. Upphaf starfs er samkomulag en æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Við myndgreiningu starfar öflugur hópur sérfræðilækna og almennra lækna í þverfaglegum teymum og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða aðlögun í starfi.
- Almenn sérfræðilæknisstörf á röntgendeild Landspítala
- Sérfræðiráðgjöf á Landspítala og til annarra stofnana og fagaðila
- Kennsla læknanema og sérnámslækna og leiðsögn annarra heilbrigðisstarfsmanna
- Vísindarannsóknir tengdar sérgreininni
- Þátttaka í gæða- og umbótastarfi
- Þátttaka í vöktum sérfræðilækna
- Íslenskt sérfræðileyfi í myndgreiningu
- Reynsla í myndgreiningu
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum
- Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
- Íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5