Sérfræðilæknir í bæklunarskurðlækningum
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í bæklunarskurðlækningum á skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu Landspítala. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi og er starfið laust frá 1. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi.
Leitað er eftir jákvæðum og metnaðarfullum sérfræðilækni til að annast sérhæfða meðferð og eftirfylgd sjúklinga okkar.
Sérgreinin býður upp á líflegt og krefjandi starfsumhverfi og mikil tækifæri til starfsþróunar. Áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun.
- Almenn sérfræðistörf í samráði við yfirlækni sérgreinarinnar, s.s. greining, meðferð og eftirfylgd sjúklinga með vandamál er tengjast sérgreininni, m.a þátttaka í samráðskvaðningum og göngudeildarþjónustu
- Reynsla af uppvinnslu og meðhöndlun sarkmeina, reynsla af liðskiptaaðgerðum (mjaðmir, hné, axlir), reynsla í meðhöndlun fylgikvilla liðskiptaaðgerða (enduraðgerðir, meðhöndlun sýkinga) eða reynsla í bráðameðhöndlun brota er kostur
- Þátttaka í bakvöktum sérgreinarinnar
- Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækni
- Þátttaka í gæðastarfi sérgreinar
- Íslenskt sérfræðileyfi í bæklunarskurðlækningum
- Almenn reynsla í greiningu og meðferð sjúkdóma sérgreinarinnar
- Reynsla af kennslu- og vísindavinnu æskileg
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Starfsstöð er Landspítali og eftir atvikum önnur sjúkrastofnun sem yfirlæknir hefur sem starfsskyldu að manna.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur skulu framvisa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5