Hjúkrunardeildarstjóri á göngudeild lyndisraskana
Laus er til umsóknar staða hjúkrunardeildarstjóra á göngudeild lyndisraskana. Leitað er eftir kraftmiklum hjúkrunarfræðingi með reynslu af stjórnun og hæfni til að leiða árangursríka þjónustu við sjúklinga, efla notendamiðaða nálgun, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við aðra stjórnendur og starfsfólk.
Við sækjumst eftir einstaklingi með hæfni til að leiða þverfaglega teymisvinnu, er hvetjandi og stuðlar að jákvæðum starfsanda. Hjúkrunardeildarstjóri er yfirmaður þjónustu göngudeildarinnar, stýrir daglegum rekstri og er leiðandi um fagleg málefni deildarinnar. Hjúkrunardeildarstjóri starfar í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing, yfirlækni deildar, og aðra stjórnendur þeirra fagstétta sem starfa á göngudeildinni.
Á göngudeild lyndisraskana starfa nú sex sérhæfð meðferðarteymi:
- Áfallateymi
- Átröskunarteymi
- DAM-teymi
- Geðhvarfateymi
- Þunglyndis- og kvíðateymi, ÞOK
- Öldrunargeðteymi
Teymin eru þverfagleg og eru öll staðsett á Kleppi, nema ÞOK-teymi og öldrunargeðteymi sem staðsett eru við Hringbraut.
Hjúkrunardeildarstjóri hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 01.06. 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur kjarna 2 í geðþjónustu.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfsemi, flæði og gæðum hjúkrunarþjónustu; setur markmið um umbætur og öryggi og tryggir eftirfylgni; stuðlar að þekkingarþróun og kennslu og hvetur til vísindastarfa
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar
- Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við yfirlækni, forstöðuhjúkrunarfræðing og framkvæmdastjóra
- Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
- Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi innan geðþjónustu
- Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan geðþjónustu og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli
- Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Framhaldsmenntun í hjúkrun og/ eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
- Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
- Reynsla af starfi í geðþjónustu Landspítala er kostur
- Reynsla af starfi á göngudeild er kostur
- Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
- Mjög góð hæfni í samskiptum, jákvætt viðmót og lausnamiðun
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, deildarstjóri, stjórnunarstarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5