Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í fæðingarlækningum í fæðingarteymi kvenna- og barnaþjónustu Landspítala. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust 1. september 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Í fæðingarteyminu starfar öflugur hópur sérfræðilækna í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Áhersla er lögð á þverfaglega samvinnu til að tryggja öryggi mæðra og barna.
Starf sérfræðilæknis í fæðingarteymi Landspítala felur í sér vinnu við fæðingarþjónustu, þ.m.t. göngudeild vegna áhættumæðraverndar og vinna við fæðingar. Þátttaka er í vöktum og bakvöktum fæðinga- og kvenlækninga. Þátttaka í kennslu og vísindavinnu sem og önnur sérverkefni, umsjónarstörf eða eftirlitsverkefni eru í samráði við yfirlækni.
- Íslenskt sérfræðileyfi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum
- Reynsla af störfum við áhættumæðravernd
- Leiðtogahæfileikar
- Góð samstarfs- og samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
- Fyrri störf, menntun og hæfni
- Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir,
Tungumálahæfni: íslenska 4/5