Hjúkrunarfræðingar/ nýútskrifaðir óskast á kjörár á Landspítala 2024-2025
Hefur þú áhuga á virkri starfsþróun á fyrsta árinu þínu í starfi?
Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á Landspítala. Þeir sem hafa áhuga býðst að ráða sig á sérstakt kjörár sem felur í sér að starfa á tveimur tengdum deildum á fyrsta árinu í starfi. Kjörár er hugsað fyrir hjúkrunarfræðinga sem hafa hug á að sérhæfa sig á ákveðnum sérsviðum hjúkrunar.
Allir nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar taka þátt í sérstöku starfsþróunarári en markmið þess er að auka hæfni þeirra til að takast á við áskoranir í starfi, stuðla að auknum gæðum hjúkrunar og öryggi sjúklinga, auk þess að efla fagmennsku og ánægju í starfi.
Menntadeild Landspítala skipuleggur starfsþróunarárið með hliðsjón af stöðlum frá American Association of Colleges of Nursing. Frá miðjum september 2024 og fram í apríl 2025 verður boðið upp á reglulega fræðsludaga, þar sem fjölbreyttum kennsluaðferðum er beitt, þar með talið hermikennslu.
Boðið verður upp á eftirfarandi deildir / svið hjúkrunar á kjörári 2024-2025
- Öldrunardeild og t.d. bráðamóttaka eða gjörgæsla
- Geðdeildir
- Krabbameinsdeildir
- Taugalækningadeild og t.d. bráðamóttaka eða gjörgæsla eða göngudeild
- Kvenlækningadeildir (fyrir þá sem hafa hug á ljósmóðurfræði)
- Lyflækningadeild og tengd deild (m.v. áhugasvið)
- Skurðlækningadeild og tengd deild (m.v. áhugasvið)
Vinsamlegast skráið óskir um deildir undir "Annað"
- Veita heildræna hjúkrun og beita gagnreyndum starfsháttum
- Greina hjúkrunarþarfir sjúklinga, setja fram markmið og meðferðaráætlun í samvinnu við sjúklinga, skrá og meta árangur
- Fyrirbyggja fylgikvilla sjúkrahúslegu og alvarlegar afleiðingar þeirra
- Samhæfa útskrift og veita sjúklingum og aðstandendum fræðslu
- Taka þátt í þróun hjúkrunar á deild
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Hafi lokið námi í hjúkrunarfræði sem veitir starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur á Íslandi
- Íslenskt hjúkrunarleyfi eigi síðar en október 2024
- Faglegur metnaður og áhugi
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun