Sumarstörf 2024 - Hjúkrunarnemar sem lokið hafa 1. eða 2. námsári
Laus eru til umsóknar fjölbreytt sumarstörf fyrir nema í hjúkrunarfræði sem lokið hafa 1. og 2. námsári fyrir sumarið 2024.
Í boði eru fjölbreytt störf víða um spítalann. Hvar liggur þinn áhugi?
Ekki verða auglýst sumarstörf sérstaklega niður á deildir/ þjónustukjarna svo vinsamlega skráið óskir um deildir/ þjónustukjarna í reitinn "annað" neðst á umsóknareyðublaðinu og forgangsraðið þar sem númer eitt er fyrsta val.
Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út og með umsókninni fylgi staðfest yfirlit yfir lokin námskeið með ECTS einingum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
- Verkefni og ábyrgð eru mismunandi eftir deildum
- Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Hafa lokið 1. eða 2. námsári í hjúkrunarfræði
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Góð íslenskukunnátta
- Einstaklingur þarf að hafa náð 18 ára aldri að lágmarki
Frekari upplýsingar um starfið
Auglýsingin var birt 05.01.2024 með umsóknarfresti fyrst til 29.02.2024 og síðar framlengt til 02.04.2024. Umsóknarfrestur hefur nú aftur verið framlengdur til og með 15.05.2024. Verið er að vinna úr umsóknum sem þegar hafa borist og unnið verður jafnóðum úr nýjum umsóknum sem berast.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.
Með umsókn skal fylgja:
- Staðfesting á um hversu mörgum ECTS einingum er lokið þegar störf hefjast.
- Starfsferilskrá þar sem nám og fyrri starfsreynsla er tilgreind.
Forsenda ráðningar sem háskólanemi hjá Landspítala er að viðkomandi skili staðfestum gögnum um námsframvindu um leið og þau liggja fyrir að loknu vormisseri.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða í viðtal, öllum umsóknum verður svarað að ráðningum loknum.
Nánari upplýsingar um störfin veita eftirfarandi mannauðsstjórar :
Skurðlækningasvið, Elfa Hrönn Guðmundsdóttir, elfahg@landspitali.is
Geðsvið, Hulda Dóra Styrmisdóttir, huldads@landspitali.is
Hjarta- æða- og krabbameinssvið, Anna Dagný Smith, annads@landspitali.is
Lyflækningasvið, Sigríður Edda Hafberg, shafberg@landspitali.is
Kvenna- og barnasvið, Hrönn Harðardóttir, hronhard@landspitali.is
Klínískt þjónustusvið / Bráðasvið, Elías G. Magnússon, eliasg@landspitali.is
Öldrunar- og endurhæfingarsvið, Bára Benediktsdóttir, baraben@landspitali.is
Starfsmerking: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarnemi