Sumarstörf 2024 - Sjúkraliðar/ sjúkraliðanemar
Laus eru til umsóknar fjölbreytt sumarstörf fyrir sjúkraliða og sjúkraliðanema sumarið 2024.
Í boði eru fjölbreytt störf víða um spítalann. Hvar liggur þinn áhugi?
Ekki verða auglýst sumarstörf sérstaklega niður á deildir/þjónustukjarna svo vinsamlega skráið óskir um deildir/ þjónustukjarna í reitinn "annað" neðst á umsóknareyðublaðinu og forgangsraðið þar sem númer eitt er fyrsta val.
Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út og með umsókninni fylgi staðfest yfirlit yfir lokin námskeið með ECTS einingum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
- Verkefni og ábyrgð eru mismunandi eftir deildum
- Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi eða staðfesting á sjúkraliðanámi
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Góð íslenskukunnátta
- Einstaklingur þarf að hafa náð 18 ára aldri að lágmarki
Frekari upplýsingar um starfið
Auglýsingin var birt 05.01.2024 með umsóknarfresti fyrst til 29.02.2024 og síðar framlengt til 02.04.2024. Umsóknarfrestur hefur nú aftur verið framlengdur til og með 15.05.2024. Verið er að vinna úr umsóknum sem þegar hafa borist og unnið verður jafnóðum úr nýjum umsóknum sem berast.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Stjórnendur hafa samband við þá umsækjendur sem þeir hafa hug á að bjóða í viðtal, öllum umsóknum verður svarað að ráðningum loknum.
Athugið að allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og þarf að sækja um þær sérstaklega.
Nánari upplýsingar um störfin veita eftirfarandi mannauðsstjórar :
Skurðlækningasvið, Elfa Hrönn Guðmundsdóttir, elfahg@landspitali.is
Geðsvið, Hulda Dóra Styrmisdóttir, huldads@landspitali.is
Hjarta- æða- og krabbameinssvið, Anna Dagný Smith, annads@landspitali.is
Lyflækningasvið, Sigríður Edda Hafberg, shafberg@landspitali.is
Kvenna- og barnasvið, Hrönn Harðardóttir, hronhard@landspitali.is
Klínískt þjónustusvið / Bráðasvið, Elías G. Magnússon, eliasg@landspitali.is
Öldrunar- og endurhæfingarsvið, Bára Benediktsdóttir, baraben@landspitali.is
Starfsmerking: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, sjúkraliðanemi