Hjúkrunardeildarstjóri á skurðstofur á Hringbraut
Við leitum eftir öflugum leiðtoga með faglega hæfni og farsæla reynslu af stjórnun, rekstri og eflingu mannauðs til að leiða starfsemi skurðstofa á Hringbraut. Hjúkrunardeildarstjóri þarf að búa yfir afburða hæfni í samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar, við aðra stjórnendur og samstarfsaðila. Deildarstjóri er yfirmaður hjúkrunar á deildinni, stjórnar daglegum rekstri og er leiðandi um hjúkrunarfræðileg málefni.
Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri skurðlækningasviðs. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2023 eða eftir samkomulagi.
Á skurðstofum Landspítala við Hringbraut eru 11 skurðstofur sem þjóna 7 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 10 þúsund aðgerðir.
Á deildinni starfa um 90 manns; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi á báðum starfseiningum.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á deildinni
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar
- Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun skurðstofa inn í nýjan meðferðarkjarna
- Tryggir að öryggis-, gæða og umbótastarfi sé framfylgt
- Starfar náið með deildarstjóra skurðstofa í Fossvogi
- Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Framhaldsmenntun í skurðhjúkrun er skilyrði
- Önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
- Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
- Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
- Farsæl reynsla af uppbyggingu og stýringu mannauðs er kostur
- Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
- Hæfni til að leiða teymi
- Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun hjúkrunar og gæða- og öryggismál
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið, afrit af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á faglegu og stöðluðu matsferli.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum og hefur Landspítali hlotið jafnlaunavottun.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Öllum umsóknum verður svarað.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunardeildarstjóri, sérfræðingur í hjúkrun, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun