Hjúkrunarfræðingur - fjölbreytt og líflegt dagvinnustarf á göngudeild skurðlækninga
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á göngudeild skurðlækninga í Fossvogi. Um er að ræða 80-100% starf í dagvinnu. Deildin er göngudeild háls-, nef-, og eyrnalækninga, lýtalækninga, æðaskurðlækninga og heila- og taugaskurðlækninga. Þar er einnig starfrækt innskriftarmiðstöð skurðdeilda ásamt sáramiðstöð. Starfið sem um ræðir fellur aðallega undir hluta göngudeildar háls, nef- og eyrnalækninga. Unnið er í teymi með háls-, nef- og eyrnalæknum ásamt öðrum fagstéttum innan og utan deildar.
Góður starfsandi ríkir á deildinni sem einkennist af vinnugleði og metnaði og er markvisst unnið að umbótum og framþróun. Í boði er einstaklingbundin aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga sem gefur góða möguleika á starfsþróun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Starfið er laust frá 1. ágúst 2023 eða eftir nánara samkomulagi.
- Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
- Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu og þróunarstarfi innan deildar
- Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
- Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Íslenskukunnátta er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, dagvinna