Skurðhjúkrunarfræðingar / hjúkrunarfræðingar á skurðstofur
Við leitumst eftir að ráða inn skurðhjúkrunarfræðinga á skurðstofur Landspítala við Hringbraut. Einnig kemur til greina að ráða inn nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á skurðhjúkrun. Í boði eru áhugaverð störf með góðu samstarfsfólki þar sem unnið er á þrískiptum vöktum auk bakvakta samkvæmt vaktskipulagi deildar eftir að þjálfun lýkur. Störfin eru laus samkvæmt nánara samkomulagi.
Á skurðstofum Landspítala við Hringbraut eru 11 skurðstofur sem þjóna 7 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 10 þúsund aðgerðir.
Á deildinni starfa um 90 manns; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi á báðum starfseiningum. Í boði er einstaklings aðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
- Einstaklingshæfð hjúkrun við undirbúning, framkvæmd og skil í skurðaðgerðum samkvæmt skipulagi deildar
- Ákveður, skráir og veitir hjúkrunarmeðferð í samráði við þarfir skjólstæðinga
- Ber ábyrgð á meðferð samkvæmt starfslýsingu og vinnureglum deildar
- Þátttaka í teymisvinnu og umbótastarfi deildar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Sérnám í skurðhjúkrun er kostur
- Faglegur metnaður
- Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar og færni í teymisvinnu
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Öllum umsóknum verður svarað.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur