Yfirlæknir gigtarlækninga
Starf yfirlæknis gigtarlækninga á Landspítala er laust til umsóknar. Yfirlæknir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi; þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð. Auk þess gegnir yfirlæknir mikilvægu hlutverki í kennslumálum og uppbyggingu vísindastarfs. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lyflækninga- og bráðaþjónustu.
Leitað er eftir sérfræðilækni með víðtæka reynslu og hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra og annað starfsfólk. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2023 eða eftir nánara samkomulagi.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun gigtarlækninga, þ.m.t. kennslumál og vísindastarf, í samráði við framkvæmdastjóra lyflækninga- og bráðaþjónustu og framkvæmdastjóra lækninga og í samvinnu við akademíska starfsmenn deildarinnar.
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði einingarinnar, í samráði við framkvæmdastjóra lyflækninga- og bráðaþjónustu
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni, í samráði við framkvæmdastjóra lyflækninga- og bráðaþjónustu
- Íslenskt sérfræðileyfi í gigtarlækningum
- Doktorspróf í heilbrigðisvísindum er æskilegt
- Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
- Færni og reynsla í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Frekari upplýsingar um starfið
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér og vistar, fyllir það út og sendir með umsókn.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.