Almennur læknir / tímabundið starf í taugalækningum
Við óskum eftir að ráða lækni, með góða færni í mannlegum samskiptum, til starfa á taugalækningdeild í Fossvogi.
Deildin heyrir undir lyflækningaþjónustu Landspítala.
Almennur læknir mun starfa með sérfræðilæknum deildarinnar. Náin samvinna er við starfsfólk deildarinnar.
Starfið er tímabundið til 6 mánaða. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.
- Almenn störf á legudeild og vinna við inn- og útskriftir
- Þátttaka í teymisvinnu, þ.m.t ráðgjöf innan LSH
- Vinna við meðferð sjúklinga á dag- og göngudeild
- Almennt íslenskt lækningaleyfi
- Sérnámsgrunnur eða sambærilegu starfsnámi lokið við upphaf starfs
- Reynsla í lyflækningum er góður kostur
- Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
- Fagleg vinnubrögð
- Gott vald á íslensku máli
Frekari upplýsingar um starfið
Nauðsynleg fylgiskjöl:
» Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfi
» Ferilskrá
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Almennur læknir, læknir með lækningaleyfi, læknir