Viltu vera á skrá? Umönnunarstörf á Landspítala
Við leitum eftir starfsfólki í umönnunarstörf á Landspítala. Á Landspítala er lögð áhersla á fagmennsku, framþróun og stöðugar umbætur.
Við stefnum á að vera einn besti vinnustaður landsins sem býður uppá gott starfsumhverfi. Í boði er markviss og einstaklingshæfð aðlögun. Vilt þú taka þátt í vegferðinni með okkur?
Í þessum starfaflokki er eingöngu ráðið í tímabundnar stöður s.s.
- Störf við verkefni sem standa í tvo mánuði eða skemur
- Störf við afleysingar sem ekki er ætlað að standa lengur en 12 mánuði samfellt
Í boði eru störf vítt og breitt um spítalann.
Hvar liggur þinn áhugi? Vinsamlega skráið í "Annað" reitinn óskir um svið/deild.
Ath. allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og það þarf að sækja um þær sérstaklega.
- Verkefni og ábyrgð eru mismunandi eftir deildum
- Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Hæfni og geta til að vinna í teymi
- Íslenskukunnátta
- Einstaklingur þarf að hafa náð 20 ára aldri að lágmarki
Frekari upplýsingar um starfið
Upphafsdagur starfa sem og starfshlutfall er samkomulag.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.