Viltu vera á skrá? Ljósmóðir með starfsleyfi
Landspítali er suðupunktur þekkingar, þróunar og þverfaglegrar samvinnu. Lögð er áhersla á fagmennsku, framþróun og stöðugar umbætur. Við stefnum á að vera einn besti vinnustaður landsins sem býður upp á gott starfsumhverfi og samkeppnishæf kjör.
Í þessum starfaflokki er eingöngu ráðið í tímabundnar stöður s.s.
- Störf við verkefni sem standa í tvo mánuði eða skemur
- Störf við afleysingar sem ekki er ætlað að standa lengur en 12 mánuði samfellt
Hér geta ljósmæður sett inn starfsumsókn og verið á skrá hjá Landspítalanum.
Ath. allar ótímabundnar stöður eru auglýstar og það þarf að sækja um þær sérstaklega.
- Verkefni geta verið ólík eftir deildum
- Símaráðgjöf og móttaka kvenna í fæðingu og kvenna með vandamál á meðgöngu
- Umönnun kvenna í fæðingu, sængurkvenna og umönnun nýbura
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Íslenskt ljósmóðurleyfi
- Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
- Hæfni og vilji til að vinna í teymi
- Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Upphafsdagur starfa sem og starfshlutfall er samkomulag.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.